Betsey Johnson mun aldrei hætta

frettirbetsey.PNG

Betsey Johnson; lína Betsey fyrir Opening Ceremony.

Fyrir nokkru kom tískuhönnuðurinn Betsey Johnson á stað orðrómum um að kannski væri kominn tími á að fara á eftirlaun.  „Ég ætti að vera farin á eftirlaun. Ég er í grundvallaratriðum að klúðra hlutunum af því ég er ekki hætt störfum. Ég væri til í að fara í vinnuna fjóra daga í mánuði,“ sagði hin 66 ára gamla Betsey. Hún sagðist vilja ferðast meira og einkum geta vaknað á morgnana og sagt ‘Hvað á ég að gera í dag?‘. Eftir að þessi ummæli flugu um netheima fóru af stað vangaveltur um eftirmann Betsey og taldist Eric Sartori, sem hefur m.a. unnið fyrir Veru Wang og Hervé Léger, líklegur kandídat.

Það liðu þó aðeins nokkrir dagar þangað til að fréttatilkynning kom frá Betsey þess efnis að hún muni aldrei hætta. „Ég mun aldrei fara á eftirlaun svo lengi sem ég hef lappirnar og förðunarboxið.“ Hún virðist því hafa talað af sér nokkrum kvöldum áður. Talsmaður hennar sagði jafnframt að „Betsey Johnson muni halda áfram að útvega listrænan innblástur og leiðsögn svo lengi sem hún lifir.“ Til staðfestingar að Betsey sé ekki að fara að setjast í helgan stein, þá hefur hún tekið höndum saman við verslunina Opening Ceremony um hönnun línu sem verður fáanleg með haustinu.