Brüno gerir góðlátlegt grín að tískuheiminum

19621244824180frettirbruno.PNG

Samkynhneigða tískulöggan Brüno, sem er hugarfóstur leikarans Sacha Baron Cohen, gerði leiðarvísir um tískunna frá A-Ö í bókstaflegri merkingu, fyrir júlí tölublaðið af breska Marie Claire. Brüno er þar á forsíðunni ásamt brasilísku fyrirsætunni Alessandra Ambrosio en forsíðan er liður í kynningarherferð á kvikmyndinni um Brüno sem er væntanleg 8.júlí í Sambíóin. Leiðarvísirinn var í gríni gerður en margt sem þar kom fram fór þó fyrir brjóstið á viðkvæmum sálum.

Brüno fór óvarlega í mannskæðu hryðjuverkin 11.september: „S er fyrir September ellefti 2001. Frægur fyrir að vera dagurinn sem Oscar de la Renta endurskapaði ‘peasant‘ blússuna." Fellibylurinn Katrina fékk heldur ekki náðun hjá Brüno: „H er fyrir Háar mittis buxur. Með tilliti til mannlegs harmleiks á stóran mælikvarða, af hverju eru þær ekki að fá eins mikla athygli og fellibylurinn Katrina fékk?" Hann lét ekki umfjöllun um átröskunarsjúkdóma vera: „B fyrir búlimíu. Enn efst á lista yfir átröskunarsjúkdóma ef þú vilt flottan líkama."

Hann segir tískuna vera mikilvægustu vísindagreinina. „Ó er fyrri Órettlæti. Af hverju eru gefin Nóbelsverðlaun í eðlisfræði, læknisfræði og sundi, en ekki tísku?" Samkvæmt Brüno er Marc Jacobs ekki aðeins tískuhönnuður, heldur einnig mikilvægur heimsleiðtogi. Annað var ekki eins saklaust, „L er fyrir Lítið svart barn. Þökk sé Madonnu og Brüno er það möst þessar árstíðar". Þegar upp er staðið tók Sacha Baron Cohen á helstu hitamálum tískuheimsins eins og notkun loðfelda og átröskun á beinskeyttan hátt.

Allan listann er að finna á vefsíðu Marie Claire. www.marieclaire.co.uk/news/344103/read-br-no-s-hilarious-a-z-guide-to-fashion.html