Brúðarlína Vivienne Westwood
Brúðarkjóllinn eftir Vivienne Westwood sem Carrie Bradshaw klæddist í Sex and the City kvikmyndinni seldist upp á nokkrum tímum í netversluninni Net-a-Porter. Nú er til sölu á sömu síðu styttri útgáfa af kjólnum úr Vivienne Westwood Gold Label. Westwood hefur greinilega hugsað sér gott til glóðarinnar, því hún er komin með brúðarlínu fram á sjónvarsviðið.
Vivienne Westwood hefur ekki beint verið talin brúðarkjólatýpan og var því nokkuð óvænt að næsta verkefni hennar hafi verið hönnun brúðarkjóla. Eins og vera ber eru þeir einstakir en þeir eru allir í svipuðum stíl og kjóll Carrie. Þeir eru nokkuð frábrugðnir hefðbundnum brúðarkjólum og ættu því að heilla aðdáendur hönnuðarins sem og Sex and the City.
