Búningar í fyrirhugaðri tónleikaferð Jackson
Áður en poppgoðið Michael Jackson andaðist þá stóð undirbúningur sem hæst fyrir heljarinnar tónleikaferð sem kallaðist This Is It. Partur af þeirri miklu vinnu var gerð búninganna sem Jackson var svo frægur fyrir. Búningahönnuðurinn Dennis Tompkins vann hart að því að endurskapa og nútímavæða fræga Jackson klæðnaði, eins og hanskann og pallíettujakkana. Í búningagerðinni komu Svarowski kristallar við sögu og var ekkert til sparað við að gera búningana sem glæsilegasta. Tompkins vann náið með Jackson sjálfum enda hafði hann ákveðnar skoðanir á hlutunum.
Nú hefur verið opinberað lítið sýnishorn af skissum og efnisprufum búninganna og má með sanni segja að þeir hefðu orðið einstakir. Samkvæmir sjálfum sér en í senn nýtískulegir. Tompkins segir að söngvarinn hafi spurt hann: „Hvernig getum við tekið þetta upp á næsta stig?" Eitt af svari Tompkins við þessari spurningu var að sauma lítil ljós á rauða Thriller leðurjakkann, einnig áttu hanskinn og sokkarnir að vera alskreytt Swarovski. Búningarnir voru þó gerðir með danshreyfingarnar í huga og passað upp á að þeir væru ekki óþægilegir. „Dansinn kom fyrst, búningarnir voru númer tvö," segir hönnuðurinn.
Smelltu hér til að sjá stíl Jackson yfir árin.
