Burberry til London

19491243875903frettirburberry.PNG
Christopher Bailey við upplýst Burberry lógóið; Lily Donaldson, Alexa Chung og Helena Christensen í Burberry teitinu á fimmtudaginn.

Til að halda upp á 25 ára afmæli tískuvikunnar í London hefur Burberry tískuhúsið ákveðið að sýna í London á væntanlegri tískuviku. Sumarsýning næsta árs verður því ekki sýnd í Mílanó líkt og fyrri ár. Tískuhúsið mun halda heljarinnar veislu eftir sýninguna í höfuðstöðum sínum í London. „London er heimili okkar – það er hjarta þessa alþjóðlega lúxusmerkis og hringiða allrar okkar sköpunargáfu," var haft eftir yfirhönnuðinum Christopher Bailey.

Breski tískuheimurinn er ákaflega ánægður með þessa ákvörðun breska tískuhússins, en hún er talin eiga eftir að draga erlenda athygli að borginni yfir tískuvikuna. „Við erum spennt að sýna á tískuvikunni í London og sérstaklega að fá að vera hluti af sögulegu 25 ára afmæli hennar. Við erum einstaklega stolt af því að vera bresk og þetta er virkilega gott tækifæri til að fagna því í okkar heimaborg," sagði Bailey í síðustu viku. Sýning Burberry Prorsum í haust mun loka tískuvikunni með pomp og prakt.

Breska tískuráðið segir fleiri bresk tískumerki sem hafa sýnt tískulínur sínar á erlendri grundu eiga eftir að bætast í hópinn. „Væntanlegar eru tilkynningar um fleiri nöfn sem snúa aftur á sýningarpalla London, þar á meðal stór breskur hönnuður sem verður tilkynntur í vikunni," segir forsvarsmaður tískuráðsins. Fjallað verður um þennan lykilhönnuð á Tískuheimi.is á morgun.

Aðrar fréttir er varða Burberry birtust einnig í sömu viku. Þær hljóða svo að borgarstjóri New York, Bloomberg, skipaði 28.maí síðastliðinn sem opinberan Burberry dag. Nýjar höfuðstöðvar tískuhússins í borginni voru í tilefni af þessu upplýstar með stöfum merkisins að utan. Dagurinn þótti nokkuð stór viðburður í tískuheimi New York og voru helstu aðdáendur Burberry í röðum stjarnanna mættar til að fagna með Bailey.