Carine Roitfeld á leið frá Vogue Paris?
Carine Roitfeld hefur verið við stjórn Vogue Paris í átta ár, eða frá árinu 2001. Þegar Roitfeld tók við tímaritinu hóf hún ýmsar breytingar á því en í dag er það talið eitt besta tískutímaritið enda hefur Roitfeld einstaka sýn á tísku. Hún hefur verið þó nokkuð mikið í sviðsljósinu undanfarið. Fyrst var svipast inn í líf hennar sem ritstjóra í sjónvarpsþættinum CNN Revealed, þar á eftir var hún í viðtali við Acne Paper þar sem hún ljóstraði upp stílleyndarmálum sínum, og nú síðast birtist viðtal við hana í The Guardian. Þar sagði hún meðal að „tíska snýst ekki um föt, hún snýst um ákveðið útlit", en það virðist sem fólk sækist eftir viðtölum við þessa áhugaverðu konu miðað við alla þá athygli sem hún hefur fengið nýlega.
Það sem vakti mestan áhuga lesenda viðtalsins var þegar talið barst að því hvenær hún færi frá tímaritinu. „Ég veit ekki hvað ég ætla að gera næst en ég get ekki gert það sama næstu tíu árin. Ég elska að breytast. Ég hef verið hér í átta ár; ég held að tíu ár séu kannski góð. En núna er ég mjög hamingjusöm í litlu París," sagði ritstjórinn við The Guardian. Það hafa einnig verið á sveimi orðrómar þess efnis að Roitfeld muni taka við af Önnu Wintour á ameríska Vogue. „Ég held að það sé ekki ég. Ég er góð í því sem ég geri hér og ég er ekki viss um að ef ég yrði sett í þann heim yrði ég eins góð. Ég held að það sé miklu auðveldara að tala við 100 þúsund konur en milljón konur í Ameríku."
