Carrie Bradshaw er innblástur Manolo Blahnik

26021242324030frettirblahnik.PNG
Manolo Blahnik; Sarah Jessica Parker í hlutverki sínu sem Carrie Bradshaw; Campari skórnir frá Manolo Blahnik.

Carrie Bradshaw, sem leikin er af Söruh Jessicu Parker í Sex and the City, er ábyggilega frægasti aðdáandi Manolo Blahnik skónna og á hönnuðurinn henni miklu að þakka fyrir velgengni sína. „Ég dái frú Parker. Karakterinn sem hún leikur hefur verið stórt hlutverk á mínum ferli – ég get ekki annað en litið á þær báðar sem innblástur," sagði hinn aldraði Blahnik á dögunum. Hann tjáði sig einnig um aðra áhrifavalda hönnunarvinnunnar. „Ég hrífst vanalega af kvikmyndum og margar línur mínar eru innblásnar af þeim. Það gæti verið karakter, sögusvið eða bara andi myndarinnar. Ég horfi á þær kvöldið á enda.

Eitt minnistætt atvik úr þáttunum var þegar Bradshaw fann skópar í skápi Vogue tímaritsins sem hún kallaði ‘skógoðsögn borgarinnar‘. Parið heitir Campari og eru svartir lakkskór í Mary Jane stíl, en þeir voru hannaðir árið 1994. Blahnik útskýrði nýlega sköpun skónna sem eru svo vinsælir enn þann dag í dag. „Ég var búinn að ganga í gegnum svolítið barokk tímabil á tíunda áratugnum og vildi gera eitthvað sem spornaði gegn því. Þannig ég fór mínímalíska leið. Þetta byrjaði sem hugmynd út frá barnaútgáfu af Mary Jane skóm, en ég gerði hana kynþokkafulla með oddmjórri tá, háum hæl og svörtu lakki."

Hér fyrir neðan má sjá umrætt atriði úr Sex and the City.
.