Cavalli selur hlut í tískuveldi sínu
Roberto Cavalli; fyrirsætan Daria Werbowy í sumarherferð Cavalli; fyrirsætan Freja Beha Erichsen í sólgleraugnaauglýsingu Cavalli.
Roberto Cavalli, ítalski tískuhönnuðurinn, hefur ekki getað ákveðið sig síðustu mánuði hvort hann ætti að selja hlut í tískuveldi sínu. Hann hefur nú loksins skrifað undir samning um að selja minnihluta í fyrirtækinu. Í lok maí var hann hins vegar ekki á leiðinni að selja, „ég er ekki viss um að mig langi til að selja þegar allt kemur til alls. Það er miklu rökréttara að kaupa heldur en að selja núna." Svo virðist sem Cavalli sé haldin vægri ákvörðunarfælni þó að hann hafi loksins komist að niðurstöðu í síðustu viku.
Kaupandinn er ítalskt hlutabréfafyrirtæki og eignast það um 30 prósent í fyrirtækinu. Cavalli fyrirtækið gengur vel þrátt fyrir árferðið en það er talið vera metið á yfir 300 milljón evra eða rétt um 54 milljarða íslenskra króna og því væru þessi 30 prósent nokkuð há summa. Það má eflaust búast við smávægilegum breytingum þegar ítalska fyrirtækið, Clessidra að nafni, kemur inn í stjórn Cavalli veldisins en eitt af fyrstu verkefnunum er endurnýjun sólgleraugnasamnings Cavalli og að finna nýjan forstjórna en það er víst búið að hafa samband við fjóra vinsælustu forstjóra tískufyrirtækja Ítalíu um stöðuna.
