CFDA tilkynnir tilnefningar

44921237905030frettir2403.PNG
Frá vinstri: Diane von Furstenberg á tilnefningarathöfn CFDA á dögunum, Michelle Obama á innsetningardansleik eiginmanns síns. Efri röð frá vinstri: Marc Jacobs, Thakoon. Neðri röð frá vinstri: Mulleavy systur, Alexander Wang.

Ráðgjafanefnd amerískra tískuhönnuða, CFDA, tilkynnti á dögunum hverjir væru tilnefndir til eftirstóttra verðlauna nefndarinnar. Nefndin hefur verið starfrækt í hátt í hálfan áratug og hefur meðal annars styrkt unga og efnilega hönnuði með tískusjóði í samstarfi við Vogue tímaritið. Fyrir marga hönnuði hefur sá styrkur verið ómetanlegur í að koma hönnunarhæfileikum sínum á framfæri.

Tilnefningar þessa árs voru tilkynntar viku eftir að tískuvikunni í París lauk. Belgíski hönnuðurinn, Diane von Furstenberg, sem er orðin bandarískur ríkisborgari og stýrir stóru tískuhúsi í eigin nafni, opnaði tilnefningarathöfnina þar sem hún er formaður nefndarinnar. Von Furstenberg fékk einnig það hlutverk að segja frá helstu tilnefningunum fyrir verðlaunaafhendinguna, sem verður haldin 15.júní í New York og er stór viðburður í ameríska tískuheiminum.

Verðlaunaflokkarnir eru þónokkrir og eru það bæði hönnuðir sem og annað áhrifamikið fólk í tískunni sem eiga von á verðlaunum í ár. Fyrir það fyrsta eru verðlaun fyrir lífsstíðarafrek sem fara í hendurnar á Önnu Sui. Alþjóðlegu verðlaunin fara svo ekki til útlendings eins og vanalega, heldur er það hinn alameríski Marc Jacobs sem fær þau í ár, ekki þó fyrir sitt eigið merki heldur þá vinnu sem hann hefur unnið fyrir franska tískuhúsið Louis Vuitton.

Þrír hönnuðir keppast um titilinn Upprennandi hæfileiki í kvenmannsfatnaði en það eru Alexander Wang, Jason Wu og Thakoon, en þeir tveir síðarnefndu komust rækilega á kortið eftir að forsetafrúin, Michelle Obama, klæddist hönnun þeirra. Wu varð frægur á alþjóðlegum mælikvarða á örskotsstundu þegar frú Obama klæddist kremlituðum síðkjól eftir hann á innsetningardansleik eiginmannsins. Frú Obama mun einmitt hljóta sérstök virðingarverðlaun frá stjórnendum nefndarinnar þann 15.júní.

Þeir hönnuðir sem hafa hlotið tilnefningar fyrir kvenfatnað eru áðurnefndur Marc Jacobs, Narciso Rodriguez og Mulleavy systurnar sem mynda Rodarte. Einnig eru flokkar fyrir aukahlutahönnuði ársins ásamt hönnuðum á karlmannsfatnaði. Víst er að viðburðurinn mun vera eitt af aðaltískuviðburðum ársins líkt og fyrri ár, en þangað til bíður fólk spennt eftir því að vita hverjir munu hreppa verðlaunin.