Charlotte Gainsbourg andlit nýs ilms Balenciaga

frettir2207.PNG

Nicolas og Charlotte á Costume Institute galakvöldinu í fyrra; Charlotte klædd í Balenciaga í Cannes fyrr á árinu; í auglýsingaherferð Balenciaga fyrir haust- og vetur 2008-2009.

Balenciaga tískuhúsið er þekkt fyrir undurfagra en í senn öðruvísi lúxushönnun, hannaða af Nicolas Ghesquière sem er listrænn stjórnandi hússins. Á næstunni ætlar Balenciaga að leita á ný mið með því að koma með ilmvatn á markaðinn. Franska leik- og söngkonan Charlotte Gainsbourg hefur verið fengin til að vera andlit ilmsins. Gainsbourg er mikill aðdáandi Balenciaga og innblástur Ghesquière. Hún hefur áður verið fyrirsæta í auglýsingaherferð Balenciaga ásamt því að birtast í hönnunn Ghesquière á rauða dreglinum. Auglýsingamyndir ilmsins voru teknar í Los Angeles í síðustu viku, en hann er væntanlegur á markaðinn í febrúar árið 2010.

Tískuhúsið skrifaði undir samning við Coty Prestige, stærsta ilmvatnafyrirtæki í heimi, á síðasta ári. En þá hafði Balenciaga ekki verið í ilmvatnabransanum í nokkuð langan tíma. Markaðsstjóri Coty sagði ilminn ekki eingöngu vera hugsaðan sem eitthvað sölutrix, „þetta snérist meira um að þróa ilm í kringum hugmyndir Charlotte og Nicolas.“ Gainsbourg er góðvinur Ghesquière og hefur vinátta þeirra vaxið mikið síðustu ár. „Ég var leynilega að vona að ég myndi verða andlit fyrsta ilmvatns Nicolas fyrir Balenciaga,“ segir Gainsbourg. „Ég hef það á tilfinningunni að tískuhús Balenciaga sé orðið mitt annað heimili,“ bætti hún við.