Christopher Bailey heiðraður

39961245262209frettirmbe.PNG
Natalie Massenet; Christopher Bailey; Frances Corner.

Breski tískuhönnuðurinn Christopher Bailey hefur hlotið virt verðlaun Elísabetar drottningu fyrir framlag sitt til tískuheimsins. Heiðursverðlaunin eru hluti af sérstökum heiðurslista drottningarinnar. Bailey er listrænn stjórnandi Burberry tískuhússins, en hann tilkynnti nýverið að hann muni sýna næstu sumarlínu á tískuvikunni í London eftir að hafa sýnt í þónokkur ár í Mílanó. Burberry á sér yfir hundrað ára sögu og hefur Bailey tekist vel til við stjórn listrænu hliðar tískuhússins síðustu átta árin.

Bailey var þó ekki eini maðurinn úr röðum tískufólksins sem fékk heiðursverðlaun, því Natalie Massenet, stofnandi lúxusnetverslunarinnar Net-A-Porter, og Frances Corner, prófessor við London College of Fashion, voru einnig heiðraðar fyrir sín störf. Verðlaunin þykja mjög mikilvæg í Bretlandi enda fær ekki hver sem er heiður sjálfrar drottningarinnar. Þegar náð var tali af Bailey sagðist hann virkilega ánægður en var jafnframt hógvær og sagði gott teymi í kringum sig vera ástæðuna fyrir velgengninni.