Christopher Kane í samstarf við Topshop

28821241611249frettirkane.PNG
Christopher Kane með verðlaun sem Besti breski hönnuðurinn, valið af tímaritinu Elle; haust- og vetrarlína Christopher Kane 2009-10.

Skoski hönnuðurinn Christopher Kane hefur skrifað undir samning við Topshop um að gera umsvifamikla tískulínu fyrir verslanakeðjuna. Kane hefur áður hannað fyrir Topshop en þessi lína er stærri. „Þetta er almennilegt: með töskum, skóm, prjónaflíkum og kjólum. Þetta er ólíkt öllu sem ég hef áður gert." Línan er sögð fara í sölu í lok ágúst og binda forsvarsmenn verslanakeðjunnar miklar vonir við línuna. „Þetta er allt öðruvísi en við áttum von á, og svo flott," sagði háttsettur starfsmaður innan Topshop.

Kane sýndi sína fyrstu sýningu árið 2006 og var strax talinn búa yfir miklum hönnunarhæfileikum. Hann var orðin mjög þekktur innan tískuheimsins árið 2007 og var það þá sem hann gerði sína fyrstu línu fyrir Topshop. Þrátt fyrir að Kane sé aðeins 26 ára gamall hefur hann byggt upp stórt og öflugt hönnunarveldi. Í samtali við Grazia ljóstraði hann upp smáatriðum um Topshop línuna: „Það gæti verið svolítið um liti, svolítið um skreytingar. Þetta verður óvænt. Stelpur eiga eftir að verða brjálaðar yfir þessu."