Coco á undan Chanel
Kvikmyndin Coco Before Chanel, eða Coco Avant Chanel eins og hún kallast á móðurmálinu, er ný mynd um hina goðsagnakenndu Gabrielle ‘Coco‘ Chanel áður en hún stofnaði Chanel veldið. Franska leikkonan Audrey Tautou fer með hlutverk Coco sjálfrar og þykir takast vel til að sögn þeirra sem séð hafa myndina. Hún var frumsýnd 22.apríl í heimalandinu en verður frumsýnd í lok þessa mánaðar í Bretlandi og mánuði seinna í Bandaríkjunum. Ólíklegt þykir að íslenskir aðdáendur fái tækifæri til að líta myndina augum í bíóhúsum landsins.
Fyrst um sinn var einungis að finna franskt sýnishorn úr myndinni á netinu, en nú hefur sýnishorn með enskri skýringu verið opinberað. Þar má sjá einstakar senur sem lýsa lífi Coco sem ungrar konu, bæði er þar að finna hamingjustundir sem og erfiðari tíma. Búningahönnuður myndarinnar, Catherine Leterrier, ákvað ásamt Karl Lagerfeld, yfirhönnuði Chanel, að sýna Coco í fatnaði frábrugðnum hinna kvennanna í myndinni. „Hún var fátæk en hafði samt sinn eigin stíl," sagði Leterrier. Myndin vonar góðu og ættu allir Chanel aðdáendur sem komast yfir myndina, að skyggnast í líf konunnar sem skapaði merkið.
Hér fyrir neðan má finna Coco Before Chanel trailerinn.
.
