Connelly fyrir Balenciaga í annað sinn
Jennifer Connelly í sumarherferð Balenciaga 2008; Connelly í haustherferð tískuhússins 2009.
Í sumarherferð Balenciaga tískuhússins í fyrra sat leikkonan Jennifer Connelly meistaralega fyrir í strúktúruðum appelsínugulum kjól. Balenciaga hafa nú aftur fengið Connelly til liðs við sig til að fronta haustlínu þessa árs en það var ljósmyndarinn Steven Meisel sem myndaði hana. Skiptar skoðanir eru um frammistöðu hennar í þetta skiptið og segja sumir pósurnar vandræðalegar. Þótt hægt sé að deila um fyrirsætuhæfileika leikkonunnar þá er ekki hægt að neita því að fatnaðurinn sem Connelly klæðist fær mann til að langa í flík frá franska tískuhúsinu.
Fyrirsæta síðustu haustherferðar Balenciaga var hin franska Charlotte Gainsbourg, sem er þekkt andagift hönnuðarins, Nicolas Ghesquire. Gainsbourg er einmitt andlit nýs Balenciaga ilms.
