Courtney Love orðin fatahönnuður
Rokkaragellan Courtney Love hefur staðfest fréttir þess efnis að hún sé að vinna í fatalínu. Fréttirnar verða að teljast nokkuð óvæntar þar sem Love hefur hingað til ekki verið þekkt fyrir mikið tískuvit, þó að hún hafi endrum og sinnum hitt naglann á höfuðið. Það verður því spennandi að sjá hvaða leið hún ákveður að fara með tískulínu sína en eflaust má búast við rokk og grungeáhrifum sem eru áberandi í hennar eigin stíl.
Það var breska sósíalistan Peaches Geldof, dóttir Bob Geldof, sem ljóstraði upp um línuna þegar hún setti skilaboð á Twitter síðuna sína um að hún væri að máta hönnun Love. Margir velta nú fyrir sér hvort Peaches verði andlit línunnar sem inniheldur víst harem buxur úr kasmírull og bómullarsamfestinga. Ekki hafa verið gefin upp nánari smáatriði um fatnaðinn eða hvenær von er á honum í verslanir.
