Dasha Zhukova: Nýr ritstjóri POP
Dasha Zhukova (í kjól frá Marios Schwab); fyrri útgáfur POP.
1.september er von á nýju tölublaði POP tímaritsins. Blaðið er merkilegt fyrir þær sakir að þar er á ferðinni fyrsta tölublað nýs ritstjóra. Ritstjórinn er hin 27 ára gamla Dasha Zhukova, en þegar tilkynnt var um komu hennar á tímaritið var hún best þekkt fyrir að vera kærasta rússnesk milljarðamærings. Miklar væntingar eru gerðar til Zhukova enda átti fyrri ritstjóri, Katie Grand, stóran þátt í velgegni tímaritsins. Gagnrýnisraddir eru ekki ánægðar með nýja ritstjórann sem hefur enga ritstjórnarreynslu og að sumra mati ekki mikið vit á tísku.
Katie Grand stofnaði POP árið 2000 og hefur stýrt af því af einstækri kostgæfni. Grand starfar einnig sem stílisti fyrir ýmis tískuhús og þykir hafa gott tískuvit. Hún tilkynnti um uppsögn sína á POP síðasta haust og hætti störfum fyrir árslok til að stofna nýtt hálfsárs tímarit, Love, fyrir Conde Nast fjölmiðlaveldið. Zhukova mun því þurfa einhvern tíma til að sanna sig fyrir lesendum POP en útgáfudagurinn nálgast óðfluga og getur þá hver dæmt fyrir sig.
Zhukova var nýlega í viðtali við Interview tímaritið þar sem hún svaraði gagnrýnisröddunum og tjáði sig um stöðuna. Þar kom fram að hún hafi ekki áhuga á að feta í fótspor Grand. „Ég virði Katie Grand og ég vona að ég geti haldið í einhverja virðingu fyrir merkinu. En ég hef aðrar áætlanir fyrir tímaritið núna.“ Að sögn framkvæmdastjóra ritstjórnar POP, Ashley Heath, er Zhukova mjög gáfuð, metnaðarfull og jákvæð og hefur hann fulla trú á henni sem ritstjóri POP.
Ný vefsíða POP fór í loftið nú í vor. Slóðin er www.thepop.com.
