Dell'Acqua ekki viðriðinn eigin tískumerki
Alessandro Dell'Acqua; haust- og vetrarlína Dell'Acqua 2009-2010.
Ítalski tískuhönnuðurinn Alessandro Dell‘Acqua hætti sem yfirhönnuður hjá tískufyrirtækinu Malo fyrir tveimur mánuðum og svo virðist sem hann sé ekki lengur yfir hönnuninni hjá sínu eigin tískumerki. Nýlega sendi hann út fréttatilkynningu um að hann geti ekki talið sig ábyrgan fyrir nýjustu línum Alessandro Dell‘Acqua merkisins, sem eru sumarlína næsta árs fyrir herra og forsumarlína næsta árs fyrir dömur. „Línurnar verða framleiddar án míns samþykkis, þar sem ég hef ekki haft tækifæri til að staðfesta endanlegu vöruna sem gerðar voru eftir teikningum mínum fyrir fyrirtækið," segir í tilkynningunni.
Eins og gefur að skilja á Dell‘Acqua sjálfur ekki merkið sitt, en það var fyrirtækið Cherry Grove sem eignaðist tískumerkið árið 2003. Dell‘Acqua segir þá alltaf hafa verið samkvæmir stíl hans en í þetta skiptið ákváðu þeir þó að halda áfram með ferlið án samþykki hönnuðarins. „Ég verð að aðskilja mig frá þessum tveimur línum sem hafa ekki verið samþykktar af mér og ég viðurkenni ekki sem uppfyllingu sköpunarverka minna," segir Dell‘Acqua jafnframt. Það verður merkilegt að sjá hvernig þessar línur koma til með að líta út nú þegar aðalhönnuðurinn fær litlu sem engu ráðið.
