Diane von Furstenberg semur um ásakanir
Jakki frá Mercy; jakki úr sumarlínu Diane von Furstenberg; leðurjakki úr resort línu Balenciaga; jakkar frá East West Musical Instruments.
Í maí var Diane von Furstenberg, hönnuðurinn og formaður félags amerískra fatahönnuða (CFDA), sökuð um hönnunarstuld. Það var þó ekki hún sjálf sem hannaði umrædda flík, heldur hönnuður í hönnunarteymi merkisins sem var hættur störfum. Flíkin var jakki með blómamunstri en það vesta var að hann hafði birst á forsíðu Elle tímaritsins og því fengið talsverða athygli. Furstenberg var miður sín yfir fréttunum enda hefur hún barist fyrir hönnunarrétti í starfi sínu fyrir CFDA. Í síðustu viku afgreiddi Furstenberg málið með ónefndri peningaupphæð til kanadíska fyrirtækisins Mercy.
Nú hafa hins vegar vaknað spurningar hvort að Nicolas Ghesquiere, hönnuður Balenciaga, hafi stolið hönnun á leðurjakka fyrir sumarleyfislínu næsta árs. Grunurinn fær byr undir báða vængi með tilliti til þess að áður hefur Ghesquiere verið sakaður um hönnunarstuld sem hann svo seinna játaði. Málið er þó vægara þar sem umræddur jakki var hannaður einhvern tímann á sjöunda áratuginum. Hönnuðir eru þekktir fyrir að nálgast innblástur í vintage flíkur en spurningin er þó hvort þetta atvik flokkist undir innblástur eða stuld.
