Diane von Furstenberg sökuð um stuld

24011241271458frettir0205.PNG
Diane von Furstenberg; Nathan Jenden og von Furstenberg aðalhönnuðir DVF tískuhússins; haust- og vetrarlína DVF 2009.

Diane von Furstenberg, sem fyrir utan að vera hönnuður, er einnig formaður CFDA, félags tískuhönnuða í Bandaríkjunum, er sökuð um að hafa stolið hönnun á jakka fyrir sína eigin línu. Jakkinn líkist mjög eintaki frá kanadísku merki sem kallast Mercy. Eins og gefur að skilja setja ásakanirnar von Furstenberg ekki í góða stöðu þar sem hún hefur meðal annars barist fyrir höfundarétti hönnunar sem formaður CFDA.

Von Furstenberg er höfuð og herðar tískuhúss síns sem hún rekur í eigin nafni og því beinist málið að henni sjálfri og eðlilega var henni brugðið þegar hún frétti af málinu. „Þegar ég sá þetta á netinu, hugsaði ég ‘munstrið er allt öðruvísi.‘ En svo sá ég eitthvað í sambandi við stílinn á slaufunni, þannig ég er ekki viss." Von Furstenberg hefur haft samband við lögfræðinga sína sem eru nú að kanna málið.

Þó að von Furstenberg sjálf sitji í súpunni er ekki þar með sagt að jakkinn hafi verið hannaður af henni. Hún er með hóp fólks í vinnu sem hönnuðir en samkvæmt henni er konan sem hannaði umræddan jakka ekki lengur í vinnu hjá tískuhúsinu. Hún segist vera algjörlega niðurlægð að þetta gæti hafa gerst. „Ég mun gera það sem nauðsyn krefur og ef það var framið lögbrot mun ég bæta það upp og nota þetta sem fordæmi um að þetta gerist aldrei aftur – ekki bara fyrir mig heldur alla."