Dolce & Gabbana lækka verð

34591245882712frettir2406.PNG
Stefano Gabbana og Domenico Dolce; haustlína D&G 2009.

Lúxusmerkið Dolce & Gabbana er ekki beint þekkt fyrir lága verðmiða á íburðarmiklum fatnaðinum, þvert í móti er merkið alls ekki á allra færi. Dolce & Gabbana hafa þó aðlagast tímunum í dag með því að tilkynna lækkun vöruverðs um allt að 20 prósent. „Það fyrsta sem fólk segir þegar það kemur inn í búðir í dag er ‘Flott, en hvað kostar það?‘" sagði Stefano Gabbana í samtali við Women‘s Wear Daily. Gabbana og félagi hans Domenico Dolce segjast vilja komast til móts við viðskiptavinina, sem hafa ekki eins mikið á milli handanna nú en áður. Vörulækkanirnar, sem ná bæði yfir Dolce & Gabbana línuna og D&G línuna, verða þó ekki framkvæmdar fyrr en þegar sumarlína næsta árs fer í sölu.

Lækkanirnar gátu aðeins átt rétt á sér með niðurskurði á öðrum sviðum, eins og Dolce útskýrir. „Hugmyndin er að draga úr óþarfa af því það eru of margar flíkur, of margar línur, of margar auglýsingar, of mikið af öllu sem hefur áhrif á lokaverðið. Við viljum fara til baka til tímanna fyrir 20 árum. Þetta snýst um að draga línuna. Þetta er eina leiðin til að bjarga markaðinum og fyrirtækinu okkar. Það er kominn tími til að snúa við blaðinu." Einn liðurinn í breyttum tímum gæti verið ný netverslun sem dúóið hefur ákveðið að opna í kringum D&G línuna. Sala á netsíðunni hófst formlega í gær og er aðgengileg 31 þjóðerni, en ekki Íslandi eins og er. Gaman er þó að skoða síðuna sem þeir félagar líkja við leik, en þar er m.a. að finna tískusýningar, myndir bakvið tjöldin og auglýsingaefni.

www.dandgstore.com