Dolce & Gabbana sakaðir um skattasvindl

17561243881320frettirdg.PNG
Domenico Dolce og Stefano Gabbana á galakvöldi í Cannes; Dolce og Gabbana í eigin veislu 'Fabulous Bash' í Cannes; dúóið hella kampavíni í glös eftir tískusýningu sína í febrúar.

Ítölsku hönnuðirnir Domenico Dolce og Stefano Gabbana gætu átt yfir höfði sér kæru fyrir ógreidda skatta. Rannsóknarmenn ítalska ríkisins hafa lagt fram tillögu um að hönnuðirnir eiga að vera kærðir fyrir að svíkja undan skatti og að misnota skyldur sínar. Þessar tillögur eru lagðar fram í kjölfar úttekt rannsóknarmannanna á fjármálum hönnuðanna og er niðurstaða þeirra að Dolce og Gabbana hafa ekki greitt samviskusamlega af sköttum sínum miðað við gríðarmiklar tekjur á síðasta ári. Svo gæti farið að þeir verði kærðir og látnir greiða ítalska ríkinu hvorki meira né minna en 140 milljarða íslenskra króna í sekt.

Dolce og Gabbana seldu bæði tískumerki sín, Dolce & Gabbana og D&G á síðasta ári, og fengu stóra summu fyrir þá sölu. Þeir neita ásökununum um skattasvindl og segjast hafa greitt alla skatta af sölunni. Þeir telja jafnframt tölur rannsóknarmannanna byggðar á tilgátum og langt frá því að vera á rökum reistar. „Við munum segja 3800 starfsmönnum fyrirtækjanna að við höfum greitt allt sem átti að greiða og að við munum verja okkur af ákafa til að forðast það að vera óréttlætanlega neyddir til að borga fyrir eitthvað sem var ekki til staðar til að byrja með," sögðu hönnuðurnir. Þeir segjast einungis hafa fengið 55 milljarða fyrir söluna á tískumerkjum sínum sem er langt frá því að vera það sem rannsóknarmennirnir halda fram.

Málið á sér hliðstæðu, en tískuhönnuðurinn Roberto Cavalli var kærður af ítölskum yfirvöldum fyrir að svíkja undan skatti árið 2002 og var ekki hreinsaður af ásökununum fyrr en undir lok ársins 2008, sex árum seinna. Dolce og Gabbana standa þó fast á sínum orðum um að þeir skuldi ríkinu ekki neitt. „Þetta er þversögn. Síðan hvenær á maður að borga skatta af peningum sem maður átti aldrei? Þetta er fráleit krafa byggð á algjörlega óhlutstæðum útreikningum." Tíminn mun aðeins leiða í ljós hvað gerist en það er spurning hvort það líði sex ár þangað til málið verði upplýst að fullu. Þeir mega svo sannarlega ekki við því að láta frá sér 140 milljarða ef þeir ætla að halda uppi glamúrlífsstílnum sem þeir eru svo frægir fyrir.