Donatella fílar ekki níunda áratuginn

78371244194625frettirdonatella.PNG
Donatella Versace í Interview; haustlína Versace; haustlína Balmain; haustlína Marc Jacobs.

Versace drottningin Donatella Versace birtist í viðtali í júní/júlí tölublaði af Interview tímaritinu þar sem rokkarinn og góðvinur Donatellu, Lenny Kravitz, spjallar við hana. Þar kemur ýmislegt fram en mesta athygli vekja skoðanir hennar á stóru trendi sem umlykur tískuheiminn núna og verður áfram inn í haustið – umtöluðu áhrifin frá níunda áratuginum. „Ég vissi að þetta trend væri að koma. Ég vissi nákvæmlega hvenær hver einasti hönnuður myndi byrja á því. Og ég gat það ekki, af því ég var með Gianni þegar við gerðum níunda áratuginn, á níunda áratuginum. Ég á svo margar flíkur í fatageymslunni sem ég gæti sett beint á sýningarpallinn og þær myndu vera fullkomnar."

Donatella segir tískuhönnuði geta litið til baka og fengið hugmyndir frá áhrifum fyrri áratuga en ekki eins mikið og gert er í dag, trendið er unnið of bókstaflega. „Eins og axlapúðar. Við heyrðum undir þennan tíma. En fyrir mig þá er þetta ekki skynsamlegt í dag. Það er hægt að leika sér með þetta í eina árstíð, en þetta mun ekki vera byltingarkennt. Mér finnst að við ættum að líta til framtíðar en ekki til fortíðar. Að skilgreina tímabilið sem við lifum á núna er mjög erfitt. Tískan á erfitt með að skilgreina sjálfa sig í dag. Hvað mig varðar, þá er ég að einbeita mér meira að efnum, tæknilegri hlið efna." Það er því greinilegt að Donatella mun ekki senda 80‘s innblásnar línur fram á sýningarpalla Versace í bráð.