Dries van Noten heiðraður fyrir list

85331241181006frettirdries.PNG
Dries van Noten; sumarlína Dries van Noten 2009.

Hátískuráð FIT safnsins munu á sínum árlega viðburði heiðra belgíska hönnuðinn Dries van Noten fyrir lisræn störf sín. Hátískuráðið er hluti af Fashion Institute of Technology tískuskólanum í New York, en viðburðurinn kallast Listsnilli tískunnar. Van Noten mun feta í fótspor Isabel Toledo, Alber Elbaz og Ralph Rucci sem öll hafa fengið heiður hátískuráðsins.

Valerie Steele er forstjóri og forstöðumaður FIT safnsins en hún segir list skipa stóran sess í flíkum Van Noten. Hún útskýrði hvers vegna hann varð fyrir valinu að þessu sinni. „Hans ótrúlega næmni gagnvart litum, munstrum og skreytingum er stórkostleg." Heiður hátískuráðsins eru ekki einu verðlaunin sem Van Noten hefur fengið upp á síðkastið, því í fyrra vann hann alþjóðleg verðlaun CFDA ráðsins.

Van Noten kom tískuhúsi sínu á laggirnar árið 1986 og er því reyndur í bransanum. „Ég er mjög glaður með þessi verðlaun, af því þau eru fyrir list innan tískunnar, sem er fyrir mér mikilvægasti hluturinn af öllu. Hún er kunnáttan, litirnir og efnin sem ég bý til." Steele kemur því að, að Van Noten hafi veitt sögu nútímatísku mjög veigamikið framlag með hönnun sinni.

Fyrir neðan má sjá myndbrot úr sumarlínu þessa árs frá Dries van Noten.
.