Eitursnjór á sýningu Galliano

88051237548684frettir2003.PNG

Þótt líf fyrirsæta sé skreytt miklum glamúr og glysi, þá ganga þær einnig í gegnum mikla erfðisvinnu. Hælar á skóm fara sífellt hækkandi með þeim afleiðingum að ófáar fyrirsætur detta á sýningarpallinum, skór og föt geta einnig verið of lítil eða stór með tilheyrandi óþægindum, ljóskastarar eru ofurskærir ásamt flassi af myndavélum þannig auðvelt er að tárast. Fyrirsætulífið er því ekki alltaf dans á rósum eins og fyrirsætur á sýningu John Galliano fengu að kynnast.

Galliano vildi skapa ævintýrastemningu á sýningunni með því að láta snjóa glimmersnjó. Glimmerið bar hins vegar með sér mikinn reyk sem innihélt illa lyktandi eiturgufur. Súpermódelin gengu pallinn eins og ekkert hefði í skorist, en tískuritstjórar Vogue og Harper‘s Bazaar héldu hins vegar fyrir munn og nef. Fleiri sýningargestir hóstuðu yfir reyknum og aðrir kvörtuðu undan því að glimmerið hafi stungist í augun.

Ekki er gott að virtir ritstjórar fái nánast asmakast í fremstu röðinni þar sem einbeiting þeirra hefur eflaust ekki verið mikil á sýninguna. Ef glimmer hefur stungið í augun hefur einnig verið vont að fylgjast með, en það fékk þó ekki á alla. Galliano sótti innblástur til úkraínskra brúða, en sýningin var draumi líkust og sannkallað vetrarland, þar sem snjórinn hefur ábyggilega gert sitt til að auka stemninguna. Galliano man bara næst að tékka á öndunarskilyrðum þegar snjóvél er notuð.