Ekki ætlunin að verða tískuhönnuður
Giles Deacon; haust- og vetrarlína Giles 2009-10; sumarlína Giles 2009; Lauren Bacall.
Það var fyrir slysni að Giles Deacon endaði í heimi tískunnar. Hönnuðurinn hefur verið lofaður fyrir að taka tískuna ekki of alvarlega og fyrir oft á tíðum fyndnar hugmyndir samanber Pac Man hjálma. Þrátt fyrir gamansamt yfirbragð eru flíkurnar hans klæðilegar með flottum smáatriðum. Nú hefur hann opinberað að hann hafi ekki ætlað sér feril í tísku, „ég vissi ekki alveg hvað ég vildi gera – ég vissi bara að mig langaði að gera eitthvað listrænt," sagði hann í samtali við Sunday Times.
Að eigin sögn gekk honum ekki mjög vel í bóklegum fögum í skóla, en eftir það fór hann í listnám í einum fremsta hönnunarskóla Bretlands, Central Saint Martins. Eftir það fékk hann tækifæri til að vinna hjá Bottega Veneta ásamt því að sinna störfum fyrir Marc Jacobs. Hann ákvað svo að stofna sitt eigið merki, Giles, árið 2003, „ég hafði góða hugmynd um hvað ég vildi verða fagurfræðilega séð. Á þeim tíma tók London svolitla dýfu niður á við og ég hugsaði að ef það væri einn staður til að koma til áhrifa var það hér."
Fyrsta sýningin hans var haldin á Konunglega spítalanum, en hann taldi hana mikið afrek. Giles segist innblásinn af allskonar list ásamt tónlist og fólkinu í kringum sig þegar hann hannar. Hann trúir ekki á að hafa músu, „mér líkar persónuleiki margs fólks, frekar en bara eins. Mér finnst það of skuggalegt að hafa bara eina." Hann segist þó myndi vilja dressa fyrrum kvikmyndastjörnuna Lauren Bacall.
Aðspurður um hvað sé framundan þá er stækkun fyrirtækisins honum efst í huga. Haust- og vetrarlínan fyrir 2009-10 fékk góð ummæli en fyrir utan sína eigin línu er Giles einnig í samstarfi við bresku tískuvörukeðjuna New Look og kemur sjöunda lína hans fyrir keðjuna í verslanir á næstunni. Ekki er á honum að heyra að samvinnan við New Look muni halda áfram þar sem hann sagði frá því að honum langaði að gera eitthvað fyrir Cos, fágaðra systurfyrirtæki H&M.
