Emma Watson fyrir Burberry
Harry Potter leikkonan Emma Watson frontar nýjustu herferð Burberry tískuhússins sem er fyrir næstu haustlínu. Það er frægi tískuljósmyndarinn Mario Testino sem tók myndirnar á ýmsum sögulegum stöðum í London. Samkvæmt heimildum er Watson góðvinur listræns stjórnanda Burberry, Cristopher Bailey, og því var hún í engum vafa þegar hún var beðin um að sitja fyrir í herferðinni. „Þar sem ég hef þekkt og dáð hina yndislegu Emmu Watson í nokkurn tíma var hún augljós kostur fyrir herferðina," sagði Bailey um fyrirsætuvalið.
Bailey er að vonum ánægður með útkomuna. „Ég vildi að myndirnar táknuðu bæði verðmæta sögu sem og nýtískuleika Burberry merkisins, en á meðan endurspegla hægláta fegurð, eilífð og styrk sem er sérstaklega þýðingarmikið í dag." Á myndunum sést hin 19 ára Emma í nokkrum útgáfum af goðsagnakennda Burberry rykfrakkanum, en auk þess má þar sjá töskur frá tískuhúsinu. Emma tekur við af fyrirsætum í fyrri herferðum Burberry en þar má helst nefna þær Agyness Deyn og Lily Donaldson. Herferðin mun sjást í tímaritum frá og með ágúst.
