Emma Watson fyrir Burberry?
Emma Watson fyrir Interview Magazine en hún er á forsíðu maí heftisins; Emma í kápu frá Burberry Prorsum.
Harry Potter leikkonan Emma Watson virðist eiga sitt tískumóment þessa dagana. Í síðustu viku birtust fréttir um að Emma væri andlit auglýsingaherferðar Burberry tískuhússins fyrir næstu haust- og vetrarlínu. Leikkonan, sem varð 19 ára nýlega, er sögð vera mikill aðdáandi merkisins og hefur nokkrum sinnum klæðst Burberry Prorsum á rauða dreglinum í gegnum árum.
Talsmaður Burberry vildi ekkert gefa upp þegar People tímaritið hafði samband. „Herferðin er ekki fullgerð en þegar hún verður það munum við samt sem áður ekki senda frá okkur upplýsingar fyrr en hún fer opinberlega í sýningu, sem er einhvern tímann í júní á þessu ári." Enn sem komið er, er fréttin því einungis sögusagnir en Emma þykir þó ekki ólíklegur kandídat í fyrirsætustarfið.
Emma virðist hafa eignast kæran vin innan tískuheimsins samkvæmt nýju viðtali í Interview tímaritinu þar sem hún talar um að hitta Karl Lagerfeld. „Ég hafði hitt Karl nokkrum sinnum áður, í partýum og svoleiðis þar sem við gátum ekki talað. En þetta var draumur sem varð að veruleika. Við eyddum heilum degi saman og hann getur talað um hvað sem er. Ég var algjörlega heilluð. Mér fannst ég ofdekruð að eyða svo miklum tíma með honum."
