Engar krepputískuvikur í september

frettirnyfw.PNG

Aðalsýningarstaðurinn í Bryant Park; Alexander Wang er einn af þeim sem sýna á nýja staðnum í Milk Studios.

Þegar kreppan skall á var aðalmálið í tískuheiminum – hvað verður um tískuvikurnar? Hönnuðir sáu eflaust margir fram á að þurfa að láta tískusýningar sínar víkja með öllu tilheyrandi og kostnaðinum sem þeim fylgja. Þó að allnokkrir hönnuðir hafi skipt tískusýningum sínum út fyrir lágstemmdari kynningu í stúdíóinu sínu í febrúar er áætlað að væntanleg tískuvika í New York muni ekki bíða mikinn skaða vegna kreppunnar. Mun meira verður um kynningar í stað tískusýninga en samt sem áður er búið að fylla öll pláss á aðalsýningarstaðnum.

Svo mikil er í raun ásóknin að búið er að mynda nýjan og ferskan sýningarstað af snyrtivörumerkinu MAC. Nokkur fjöldi töff tískumerkja og hönnuða hafa nú þegar skráð sig, en meðal þeirra eru Proenza Schouler, Erin Fetherston, Alexander Wang, ThreeAsFour, Band of Outsiders og Preen. Á meðan hvert sýningarsvæði í tjöldunum í Bryant Park kostar 25 þúsund dollara er sýningarsvæði M.A.C., sem er í Milk Studios, frítt. Skipuleggjendur tískuvikunnar í New York líta á nýja svæðið sem viðbót við það gamla góða og ætla að bjóða sýningargestum upp á rútur á milli staða.

Að þessu sögðu verður hins vegar öll athygli á London á komandi tískuvikumánuðum. Breska tískuráðið hefur keppst um að fá breska hönnuði sem sýnt hafa erlendis síðustu ár um að koma heim og hafa viðbrögðin ekki látið á sér standa. Von er á Burberry, Matthew Williamson, Pringle of Scotland og fleirum, en þeir nýjustu til að bætast í hópinn eru Antonio Berardi og þær áströlsku Sarah-Jane Clarke og Heidi Middleton á bakvið Sass & Bide. Tískuvikurnar ættu því að verða ómæld ánægja fyrir tískuáhugafólk rétt eins og áður.