Er Vogue að missa marks?

20371247496996frettirvogueelle.PNG

Í heimi tískutímarita toppar Vogue öll ritin fyrir fjölda auglýsinga í hverju tölublaði. Eins og allir þeir sem flett hafa tískutímariti vita eru auglýsingar stór partur af þeim og geta stundum verið ofaukið. Einn harðasti keppinautur Vogue, Elle tímaritið, hefur þó sótt á undanfarið og er það nú svo að í fyrsta skipti í 24 ár hefur Elle selt fleiri auglýsingar en Vogue. Þetta er mælt út frá því sem af er af árinu, en munurinn er afar lítill eða einungis nokkrar blaðsíður.

Þó má búast við því að Vogue muni taka auglýsingaforystuna þegar sala á auglýsingum í hið margrómaða september tölublað verður opinberuð. En þrátt fyrir að Elle sé í fyrsta sæti yfir allar auglýsingar er Vogue þó enn á toppnum þegar kemur að auglýsingum lúxus fyrirtækjanna. Útgefandi Vogue, Tom Florio, örvæntir þó ekki. „Við erum arðbær bók. Ekki eins arðbær og árið 2007, en arðbær þó." Við verðum bara að bíða og sjá hvernig auglýsingamál samkeppnisaðilanna þróast og hvort Vogue muni enn tróna á toppnum.