Erin Wasson stefnir á tískuvikuna í NY
Erin Wasson; Wasson kynnir sumarlínu þessa árs í september; Wasson kynnir haustlínuna í febrúar.
Fyrirsætan og hönnuðurinn Erin Wasson mun stækka við fatalínu sína fyrir RVCA og sýna á tískuvikunni í New York í september. Wasson hefur ekki sýnt línuna á tískuvikunni áður en hefur þess í stað haldið lágstemmdari kynningar. Línan sem hún mun sýna er fyrir næsta sumar og samkvæmt Wasson sjálfri var hún innblásin af bolabítnum sínum, Cream, og sólsetri við gerð línunnar. Skartgripalína hennar Low Luv verður einnig sýnd meðfram RVCA línunni. Búast má við stærri og veglegri línu en fyrri ár, en það var stóra deildarverslunin Barneys sem hafði frumkvæðið að því að Wasson stækkaði línuna vegna þess hversu vel hún seldist.
Fatalínan er þó ekki það eina sem fyrirsætan er með á prjónunum, því Sofia Coppola hefur fengið Wasson til að leika í nýrri mynd sinni, Somewhere. Tökur kláruðust um miðjan mánuðinn en myndin er ekki væntanleg fyrr en á næsta ári. Wasson leikur ekki stórt hlutverk í myndinni en það gæti vel verið byrjun á frekari leiklistarferli. Wasson er ekki eina fyrirsætan til að gerast leikkona, því Lily Cole hefur einnig startað leiklistarferli og lék í mynd sem sýnd var á kvikmyndahátíðinni í Cannes fyrr á árinu. Hún mun einnig vera með fleiri myndir í sigtinu, en það verður gaman að sjá hvort fleiri fyrirsætur feti í sömu fótspor á næstunni.
