Escada á ekki mikið eftir
Eva Herzigova í haustherferð Escada, en ljósmyndarinn er Peter Lindbergh.
Þýska tískuhúsið Escada er nýjasta fórnarlamb kreppunnar í tískuheiminum. Er talið að tískuhúsið lifi hana ekki af þar sem það mun vera á börmum gjaldþrots. Sala hefur versnað síðustu ár og í maí síðastliðnum var því spáð að Escada ætti ekki mikið eftir. Samkvæmt nýlegu viðtali við stjórnarformann Escada bendir allt til þess að spárnar séu sannar. Hann staðfesti að Escada ætti í fjárhagserfiðleikum og gaf til kynna að líftími tískuhússins sé ekki meiri en rúmur mánuður eða svo ef engin lausn verður fundin. Hann segir að búið sé að gera 98 prósent af mögulegum ráðstöfunum.
Escada fagnaði 30 ára afmæli í fyrra, en það var stofnað árið 1978. Tískuhúsið framleiðir kvenfatnað, töskur og skó ásamt ilmvötnum, gleraugum og barnafatnaði. Escada kjólum er iðulega klæðst af stjörnunum á rauða dreglinum og eru Katherine Heigl og Katie Holmes meðal aðdáenda. Síðasta árið hafa ofurfyrirsæturnar Eva Herzigova og Christy Turlington sitið fyrir í auglýsingaherferðum Escada, Herzigova nú síðast í haustherferð komandi hausts. Þó að Escada hafi ekki spilað stórt hlutverk í tískunni síðustu árin verður þess eflaust sárt saknað af dyggustu aðdáendunum.
