Esteban kveður Ungaro
Lindsay Lohan; Esteban Cortazar; haust- og vetrarlína Ungaro 2009-2010.
Í byrjun júní greindi Tískuheimur.is frá því að staða hins unga og upprennandi Estaban Cortazar hjá Ungaro tískuhúsinu stæði á brauðfótum. Nú hafa leiðir þeirra endanlega skilið. Esteban þótti takast vel til að hanna fyrir þetta rótgróna tískuhús, en eftir deilur sem snérust, ótrúlegt en satt, um Lindsay Lohan, hefur hann ákveðið að hætta. Sagan segir að yfirmenn tískuhússins hafi viljað fá Lohan til liðs við sig sem andlit línunnar og átti það að vera liður í nýrri markaðsstefnu. Esteban var ekki sáttur enda vildi hann ekki bendla vandræðapíuna við hönnun sína.
Það er því greinilegt að hinn 23 ára, kólumbíski Esteban mun ekki sýna á væntanlegri tískuviku í París. Hann hafði aðeins sýnt þrjár línur fyrir húsið sem höfðu fengið misgóða dóma. Flestir voru þó sammála um að haustlína þessa árs hefði verið einkar flott. Það sem vekur athygli í þessu máli er að allt í allt hafa þrír yfirhönnuðir starfað fyrir Ungaro síðustu fimm árin. Hönnuðirnir virðast ekki haldast í starfinu, en nú er spurning hver verður næsti hönnuður Ungaro? Ekkert hefur heyrst um Lohan í þessu máli eftir að tilkynnt var um uppsögn Esteban.
Smelltu hér ef þú hefur áhuga á að skoða haust- og vetrarlínu Esteban Cortazar fyrir Ungaro nánar.
