Eva Mendes andlit Calvin Klein

23651242068801frettir1105.PNG
Eva Mendes og Jamie Dornan; Mendes í ilmvatnsauglýsingu Calvin Klein; Mendes í auglýsingum síðasta árs fyrir nærfatalínu Calvin Klein.

Eva Mendes mun brátt sjást á síðum tískutímarita og á auglýsingaskiltum sem andlit Calvin Klein en meðfram leikkonunni fögru verður leikarinn og fyrirsætan Jamie Dornan. Mendes mætti í Calvin Klein kjól á Costume Institute galakvöldið sem haldið var nýlega en það var aðalhönnuður Calvin Klein, Francisco Costa, sem fylgdi leikkonunni á rauða dregilinn. Mendes og Dornan sitja fyrir í haustherferð nærfata- og gallabuxnalínu Calvin Klein.

Mendes er ekki ókunnug tískumerkinu þar sem hún var í
 herferð nærfatalínu síðasta árs ásamt því að vera andlit Secret Obsession ilmvatsins. Dornan hefur tvisvar áður verið í Calvin Klein auglýsingum, fyrst með Nataliu Vodianova og seinna með Kate Moss. Það var Steven Klein sem tók myndir haustherferðarinnar en miðað við nærfatamyndirnar af Mendes má búast við kynþokkafullri útkomu. Þess má geta að sjónvarpsauglýsing Secret Obsession þótti svo djörf að hún var bönnuð á sjónvarpsstöðum.

„Ég á í langvarandi sambandi við tískuhúsið og er ánægð að hafa framlengt samninginn og að vera hluti af Calvin Klein Jeans og Calvin Klein Underwear herferðunum," sagði Mendes eftir myndatökuna. „Ég elskaði að vinna með Steven Klein. Ég held að útkoma beggja herferða verði spennandi og ferskar," bætti hún við. Dornan var einnig ánægður með tökuna, þá sérstaklega að vinna með Evu Mendes. „Að vinna með hinni tilkomumiklu og kynþokkafullu Evu Mendes í báðum myndatökunum var ótrúlegt."