Evans afhjúpa nýja línu hannaða af Beth Ditto

98091247589622frettirditto.PNG

Væntanleg til landsins er ný lína sem söngkonan Beth Ditto hefur hannað fyrir bresku fatakeðjuna Evans. Samstarfið hefur verið áberandi í tískupressunni í Bretlandi undanfarið og var stór veisla haldin þegar línan var afhjúpuð. Fyrir þá sem ekki þekkja til Evans þá er verslanakeðjan hluti af Arcadia sem er meðal annars móðurfyrirtæki Topshop. Evans þjónar konum með línur, en stærðirnar eru frá 14 til 32. Beth Ditto línan inniheldur 22 hluti af fatnaði og aukahlutum, en hún er bæði skemmtileg og djörf nýjung hjá Evans. Línan er mikið til innblásin af níunda áratuginum með sterkum litum, pallíettum og litskrúðugum munstrum. Það sem vekur mikla athygli er dómínómunstur sem birtist bæði á þröngum kjólum og leggings. Hvað ætli Beth hafi hins vegar fundist mikilvægast? Að í línunni væri flottar flíkur fyrir djammið en svo virðist sem áætlunarverkið hafi tekist með prýði.

Yfirhönnuður Evans hafði þetta að segja um Beth Ditto línuna: „Beth Ditto er nokkurs konar íkon fyrir okkur, hún hefur alltaf verið á radarnum okkar. Við vildum virkja smitandi orku hennar og ég tel að það sjáist vel í línunni. Hún er jákvæð og skemmtileg fyrir ungar konur." Hún segir að fatalínan sé ekki beint afrakstur samstarfs beggja aðila því það hafi verið eigin hugmyndir Beth sem ráku verkefnið áfram. „Hún kom til okkar með fulla skissubók af teikningum. Það sást að hún hefur mikinn áhuga á tísku þar sem hún kom kom með vintage föt sem hún klæddist ekki en hafði keypt út af munstrinu eða litnum. Hún hjálpaði okkur einnig með hönnunarsmáatriðin eins og hærri og þykkari mittisstrengi á leggings buxunum svo þær myndu passa betur." Hvað Ditto sjálfa varðar, þá segir hún þetta hafi verið sannkallaður draumur.

Línuna verður einungis að finna í Evans Kringlunni.