Fatalína Gwyneth Paltrow opinberuð

frettirzoetees.PNG

Gwyneth Paltrow fór í samstarf við fatamerkið ZOEtee's fyrr á árinu um hönnun á eigin línu fyrir haustið. Nú hefur afraksturinn verið opinberaður og má telja hann nokkuð góðan af stjörnufatalínu að vera. Línan, sem kallast ZOEtee‘s Loves Gwyneth er komin í verslanir og er áætlað að hún eigi eftir að seljast vel. Tískuheimur greindi frá því áður að búast mætti við buxnasamfestingum, bómullarleggings, peysum með vintage útliti og fallega dreiperuðum partýkjólum í línunni, en þær flíkur eru á sínum stað ásamt fleirum.

Þó að Gwyneth hafi mikið verið viðriðin hönnunarferlið fékk hún liðsstyrk frá hönnuði ZOEtee‘s, Michael Corty, en í sameiningu reyndu þau að gera línu sem endurspeglaði stíl Gwyneth sjálfrar. Samkvæmt Corty er það „frá afslöppuðum stíl hennar yfir daginn til fágaðs stíl hennar á kvöldin.“ Þau héldu sig við klassíska liti – svartan og gráan – enda sést Gwyneth ekki oft í skærum litum. Þægindin eru höfð í fyrirrúmi en línan ber þó yfir sér svolítið rokkaðan seventís glamúr á móti. Sem sagt, fullkominn fatnaður hversdags jafnt sem fínt.