Fatalína frá Gwyneth Paltrow
Gwyneth Paltrow í London á dögunum, klædd í gráan jersey kjól úr línunni ZOEtee's Loves Gwyneth.
Leikkonan Gwyneth Paltrow hefur hannað línu fyrir franska merkið ZOEtee‘s fyrir næsta haust og vetur. ZOEtee‘s er þekkt fyrir þægilegar alhliða flíkur úr mjúku jersey efni. Línan sem Gwyneth hannar, ber nafnið ZOEtee's Loves Gwyneth og er í anda merkisins, en þar má finna klassískar jersey flíkur í bland við svolítinn glamúr. Áttundi áratugurinn kemur við sögu ásamt flíkum með áhrifum úr karlmannssniðum.
Ef marka má þann klæðnað sem Gwyneth hefur klæðst upp á síðakastið og það lof sem hún hefur fengið fyrir stíl sinn, má búast við lúxuslínu, fágaðri en í senn klæðilegri. Búið er að ljóstra því upp að flíkur eins og buxnasamfestingar, bómullarleggings, peysur með vintage útliti og fallega dreiperaðir partýkjólar prýði línuna. Það mun þó allt koma í ljós þegar hún verður afhjúpuð fyrir tískupressunni í London, en áætlað er að hún komi í búðir um miðjan ágúst næstkomandi.
Ekki er ólíklegt að finna megi svipaða stemningu yfir línunni og hönnun Stellu McCartney en þær eru vinkonur auk þess sem þær hugsa báðar um tísku með samvisku. Með það í huga mun ágóði af hverri flík fara í góðgerðarstarfsemi, nánar tiltekið til Kids Company í Bretlandi. Ekki nóg með það að góðgerðarmálin séu jákvæður punktur við línuna, þá tók hún sjálf tók þátt í öllu ferlinu, allt frá því að velja efni og ákveða smáatriði í pakkningar, annað en margir stjörnu'hönnuðir'.
