Fatamerkið Edun fær aukið fjármagn
LVMH, fyrirtækið sem á meðal annars tískumerkin Louis Vuitton, Marc Jacobs, Celine og Fendi, hefur keypt hlut í fatamerkinu Edun. Edun var stofnað árið 2005 af U2 liðsmanninum Bono og eiginkonu hans Ali Hewson. Það hefur frá byrjun vakið athygli fyrir sterka stefnu þar sem unnið er með sanngjarna viðskiptahætti en sjálf kalla þau sig samfélagslega meðvitað fatafyrirtæki. Aðalslagorð Edun er ‘Viðskipti til hjálpar‘ og vísar þannig til þess að með því að versla sanngjarnlega við fátækari lönd er verið að hjálpa íbúunum að byggja upp sjálfbært samfélag.
Þó að markmið Edun sé að hjálpa þróunarríkjum í Afríku er einnig mikill fókus á fallega hönnun. Þeir nota mikið af lífrænum efnum og eru allir bolir gerðir úr 100 prósent lífrænni bómull. Hönnun Edun er að hluta til sótt til náttúrunnar með plöntu- og dýramunstrum og litirnir eru aðallega í jarðtónum. Flíkurnar eru nútímlega og kvenlegar en línan inniheldur allt frá gallabuxum upp í blússur og kjóla. Stjörnuaðdáendur merkisins eru ekki af verri endanum, en það eru til að mynda leikkonan Gwyneth Paltrow og danska fyrirsætan Helena Christensen.
Á hluthafafundi LVMH í síðustu viku var sagt að þeir hafi lagt fram mikilvæga fjárfestingu í Edun en fjárfestingin er talin vera um 40-50 prósent af fyrirtækinu. LVMH ætla að taka virkan þátt í þróun fatafyrirtækisins, þá sérstaklega í markaðssetningu og framleiðsluúrræðum. Edun er mest selt í Evrópulöndunum Bretlandi, Svíþjóð, Frakklandi og Ítalíu en einnig í Japan. Með fjármagni LVMH tískurisans vonast þau Bono og Ali til að geta aukið sölu í fleiri löndum og vonandi kemst Edun á heimskortið sem alþjóðlegt tískufyrirtæki.
