Fjölnota stígvél

frettirlvboots.PNG

Lærahá stígvél verða aðalmálið í vetur. Þó þau séu einstaklega töff og samkvæmt nýjustu tísku eru þau ekki beint mjög praktísk. Þau eru flott við ákveðinn fatnað við ákveðin tilefni en maður myndi kannski ekki tíma að kaupa par af svipuðum stígvélum ef ætlunin væri að nota þau í fá skipti. Þarna kemur Louis Vuitton inn með nokkuð sniðuga hugmynd. Þeir hafa framleitt stígvélin 'Seduction' með rennilásum á þremur stöðum sem gerir það að verkum að hægt er að renna efsta og mið partinum af.

Í haustlínu Louis Vuitton er að finna nokkur ýktari pör af læraháum stígvélum með himinhárri platform upphækkun. Parið að ofan kemur hins vegar úr forhaustlínu Vuitton og eru mun klæðilegri. Rennilásastígvélin fást bæði háhæla sem og flatbotna, annað hvort í rúskinni eða leðri. Hægt er að hafa þau í ökklahæð, rétt fyrir neðan hnén eða upp á mið læri og því passa þau við nánast hvaða klæðnað sem er. Það er alltaf plús ef að flott hönnun er hagnýt í þokkabót, sérstaklega á tímum sem þessum.