Fjórir englar Viktoríu bera barn undir belti
Heidi Klum; Adriana Lima; Gisele Bundchen; Jourdan Dunn; Karolina Kurkova.
Fyrirsætur eru frjósamar þessa dagana því fjórar fyrirsætur sem starfa fyrir undirfatakeðjuna Victoria‘s Secret bera barn undir belti. Heidi Klum á von á sér í haust og Adriana Lima tilkynnti óléttu sína í lok maí en hún á að eiga í vetur. Flest bendir einnig til þess að hin brasilíska Gisele Bundchen sé ólétt þó hún hafi ekkert staðfest. Nýjustu barnafréttirnar koma svo frá Karolinu Kurkova sem er komin sex mánuði á leið. Það virðist því sem starfsfólk hinnar margrómuðu Victoria‘s Secret tískusýningu eigi mikla vinnu fyrir höndum að finna nýtt sett af fyrirsætum til að fylla í skarðið.
Englarnir fjórir fyrrnefndu eru þó ekki þær einu sem eiga von á sér, því hin breska Jourdan Dunn tilkynnti í vikunni að hún væri ólétt og komin fimm og hálfan mánuð á leið. Dunn er aðeins 18 ára gömul og hefur notið mikillar velgengni í tískuheiminum síðustu tvö ár. Bæði Klum og Korkova ganga með stráka og orðrómar eru um að Dunn eigi einnig von á strák. Kurkova heldur því fram að óléttualdan hafi góð áhrif á tískuheiminn. „Þetta eru góð skilaboð til tískuiðnaðarins, góður hlutur sem sýnir að við erum eðlilegar konur og við erum venjulegar og heilbrigðar og það er ástæðan fyrir því að við getum orðið ófrískar,“ útskýrði hún.
