Framtíð Halston

37821237066849frettir1403.PNG
Frá vinstri: Marios Schwab, vor-/sumarlína Halston '09, haust-/vetrarlína Halston '09, haust-/vetrarlína Halston '09.

Halston tískumerkið sem var svo vinsælt á áttunda áratugnum var endurskapað í fyrra m.a. af Tamara Mellon, forstjóra Jimmy Choo skóframleiðandans og stjörnustílistanum Rachel Zoe. Hönnuðurinn sem þá var ráðinn til starfa, Marco Zanini, yfirgaf merkið á síðasta ári og er nú mikið slúðrað um að breski hönnuðurinn Marios Schwab muni vera í viðráðum við þá um stöðu sem yfirhönnuður.

Hvorki Halston né Schwab hafa staðfest orðróminn en skyldi hann vera sannur væri það mikill heiður fyrir unga hönnuðinn að starfa hjá svo goðsagnakenndu amerísku merki. Zanini sýndi tvær línur fyrir merkið í fyrra, haust- og sumarlínu. Haustlínan sem sýnd var í New York um miðjan febrúar var hönnuð af teymi innanhúss hönnuða.

Eins og staðan er, þá vantar Halston yfirhönnuð til að stjórna listrænni stefnu. Bonnie Takhar, forstjórinn, segir að fyrirtækið sé búið að tala við marga ólíka aðila um starfið, „við höfum verið að líta á alla möguleikana á markaðnum, en höfum ekki tekið neinar ákvarðanir," sagði hún, aðspurð um orðróminn. Marios Schwab hefur hingað til hannað talsvert ólíkan fatnað frá Halston, en það verður spennandi að fylgjast með hvað verður um hönnunarstöðuna.