Framtíð Olsen systra í tískuheiminum
Ashley og Mary-Kate Olsen; Elizabeth & James; kvenlína The Row; karlmannslína The Row.
Olsen systurnar, þær Mary-Kate og Ashley, hafa ekki verið eins mikið í leiklistinni undanfarin ár, en í staðinn hafa þær einbeitt sér að tískumerkjum sínum tveimur, Elizabeth & James og The Row. The Row samanstendur af klassískum grunnflíkum úr gæðaefnum, en Elizabeth & James er litríkari og líflegri hönnun sem blandar saman ólíkum áhrifum, eins og kvenlegu og karlmannlegu. Haft hefur verið eftir systrunum að þær eyði meiri tíma hjá öðru hvoru merkinu, Ashley fyrir The Row og Mary-Kate fyrir Elizabeth & James.
Í nýlegu viðtali sagði Ashley að framtíð hennar liggi í tískuheiminum. „Ég hef verið að skipta á milli leiklistarinnar sem krakki í það að gera eitthvað sem ég er að velja fyrir sjálfa mig – að vera hluti af tískuiðnaðinum." Hún segist fylgja hjartanu við hönnunina en segir erfitt að vera stjarna sem fór út í fatahönnun. „Skynjun almennings er öðruvísi af því það eru til stjörnumerki eins og Jessica Simpson og Kimora Lee Simmons, og þetta eru stjörnumerki af því þær hafa nöfnin sín á þeim."
Samkvæmt Ashley hefur Mary-Kate enn hugann við leiklistina, og að þó að Mary-Kate sé viðskiptafélagi hennar hefur Ashley meiri metnað fyrir því að byggja merkin upp. Hluti af þeirri þróun er karlmannslína frá The Row sem mun líta dagsins ljós í haust en línan mun búa yfir sömu einkennum og kvennalínan – grunnflíkur úr lúxus efnum. Ashley tekur stöðu sína sem hönnuð alvarlega enda vill hún sanna sig í tískuheiminum og láta verkin tala, en ekki nafnið sitt.
