Frida Giannini tekur gagnrýnina ekki alvarlega

60551240251737frettirgucci.PNG
Frida Giannini; vetrarlína Gucci 2009-10; sumarlína Gucci 2009; sumarlína Gucci 2009.

Í septemer á síðasta ári þegar Frida Giannini, hönnuður Gucci, sýndi vor- og sumarlínu þessa árs heyrðust nokkrar gagnrýnisraddir þeirrar skoðunar að línan líktist um of verslanakeðjunni Zöru og fötin myndu enda í eftirhermum. „Fljótt á litið var ekkert, hvorki efni né snið, sem á eftir að standa upp úr í samanburði við hraðvirku tískuna hjá eftirhermunum [H&M og Zöru]," sagði blaðamaður á Wall Street Journal. Fleiri tískublaðamenn tóku í sama streng og efuðust um lúxusstöðu tískuhússins.

Þegar Giannini sýndi svo haust- og vetrarlínuna í mars síðastliðnum var þeirri línu líkt við tískukeðjuna Bebe. Einnig þótti skyndileg breyting á stefnu hennar frá sumrinu áður einkennileg, þar sem enginn tenging er á milli línananna. Sumarlínan var með blómamunstruðum kaftan kjólum á meðan vetrarlína næsta árs var með glamúrrokkáhrifum. Þar var Giannini enn og aftur sökuð um að innihalda ekki nógu mikinn lúxus í línunni.

Þótt fatnaður Gucci sé sagður of klæðilegur fyrir merki sem sýnir á sýningarpöllum og ekki það sem við má búast frá Gucci, er það sem betur fer ekki skoðun alls tískuheimsins. Fashion Week Daily benti til dæmis á að Giannini er eingöngu að færa tískustraumana rakleitt til viðskiptavina sinna á aðgengilegan hátt. Þegar sala á hönnunarflíkum er í talsverðri lægð er ekkert að því að halda sig við það sem maður veit að selst.

Giannini svaraði nýlega öllum neikvæðu gagnrýnisröddunum í viðtali við The Times. „Ég er ekki gagnrýnd af öllum heiminum – þetta er mjög lítill hópur fólks. Og ég mun aldrei breyta mér fyrir það. Ég vil halda mig við mínar eigin hugsanir. Þegar einhverjum langar að móðga mig með því að segja að það sé hermt eftir mér í ódýrari verslunum – þá er það, fyrir mig, mikið hrós".