Fyrirsætuferill Sessilee Lopez

62611242651447frettirlopez.PNG
Sessilee Lopez á forsíðu Vogue Italia í júlí 2008; Lopez í tískuþætti í Vogue Italia; Chanel Iman og Jourdan Dunn; Arlenis Sosa Pena.

Hin 22 ára Sessilee Lopez er enn ung að aldri en telst samt nokkuð gömul í fyrirsætuárum miðað við það að ferill hennar tók nýlega stórt stökk upp á við. Lopez varð þess heiðurs aðnjótandi að vera í sérstöku tölublaði af ítalska Vogue sem skartaði eingöngu svörtum fyrirsætum. Þetta tiltekna blað kom út í fyrrasumar en ekki nóg með það að Lopez hafi verið í þrjátíu síðna tískuþætti inni í blaðinu heldur birtist hún einnig á forsíðunni sem hún segist ekki hafa vitað af og hafi því verið algjörlega óvænt. Það var tískuljósmyndarinn Steven Meisel sem tók myndirnar og segir hún þetta tækifæri hafa endurvakið feril sinn.

Tölublaðið með svörtu fyrirsætunum vakti mikla athygli og átti góðan þátt í því að koma mörgum dökkum fegurðardísum rækilega á kortið. Lopez segir athyglina á tölublaðinu hafa skilað sér í auknum vinsældum, og fólk sem hafði áður ekki tekið eftir henni gerði það þá. „Það opnaði ekki einungis dyr fyrir mig heldur fyrir mörg ný andlit og ungar stelpur dökkar á hörund. Þar sem tískuheimurinn hefur einbeitt sér að fjölbreytni síðasta árið hefur þetta verið æðislegt." Eftir að birtast í Vogue Italia jukust atvinnuboð Lopez um að ganga sýningarpalla hönnuða um meira en helming.

Lopez birtist nú öðru hverju í hinum ýmsu tískutímaritum og nýjasta útkomna verkefnið er syrpa í júní hefti Harper‘s Bazaar. Lopez sagði svo að það væri von á einhverju sérstöku í september en hún fékkst ekki til að segja meira. Miðað við alla leyndina sem ríkir yfir þessu verkefni er von á miklu en talið er að fyrirsæturnar Chanel Iman, Jourdan Dunn og Arlenis Sosa Pena séu með í verkefninu. Enginn veit fyrir hvaða tímarit myndasyrpan með þeim stöllum mun birtast í, en heimildarmaður segir að þetta sé af þeim toga að eintakið eigi eftir að verða eftirsótt. Bæði Iman og Lopez settu smáskilaboð á Twitter síður sínar fyrir um mánuði síðan um að þær væru í leynimyndatökum í London og að útkoman væri stórkostleg.