Fyrirsætustarfið ekki forgangur lengur

frettiragy.PNG

Breska fyrirsætan Agyness Deyn hefur átt ótrúlega mikilli velgengni að fagna síðustu árin. Í nýju viðtali segist hún ekki vera svo mikið inní tískunni. „Tíska er ekki ég, jafnvel þótt ég vinni í henni. Þetta eru bara efnislegir hlutir. Ég vil bara gera það sem gerir mig glaða.“ Agyness, sem heitir raunverulega Laura Hollins, segist ekki fá innblástur úr tískuheiminum, heldur leitar hún til tónlistarfólks áttunda áratugarins fyrir hugmyndir að sínum eigin stíl.

Fyrir nokkru gengu orðrómar um að Agyness væri að hætta sem fyrirsæta en því neitar umboðsmaður hennar. „Hún er að einbeita sér að leiklistarferlinum. En hún elskar það sem hún gerir og hefur engar fyrirætlanir um að hætta,“ segir umboðsmaðurinn. Í viðtali við New York Times sagði Agyness hins vegar að hún hafði hugsað sér að færa sig út fyrir fyrirsætuheiminn og í „hluti sem ýta á takmörkin“ og „setur þig fyrir utan þægindarammann“, en þar er hún að öllum líkindum að tala um væntanleg verkefni í leiklist og tónlist. Vonandi munum við þó sjá Agyness í fyrirsætustörfunum eitthvað áfram enda mikill karakter og hefur hún nú þegar fengið hinn eftirsótta ofurfyrirsætutitil.