Fyrrum aðstoðarmaður Karl Lagerfeld kjaftar frá

29301243425202frettirmerci.PNG
Merci Karl; Arnaud Maillard; Karl Lagerfeld.

Merci Karl kallast bók eftir Frakkann Arnaud Maillard, fyrrverandi aðstoðarmann tískuhönnuðarins Karl Lagerfeld. Í bókinni leysir Maillard frá skjóðunni um tískuíkonið Lagerfeld, en hún kom út í Frakklandi fyrir tveimur árum. Þetta er ekki eina bókin um Lagerfeld, því fyrir þremur árum skrifaði Alicia Drake bókina Beautiful Fall um þá Yves Saint Laurent og Karl Lagerfeld á áttunda áratuginum. Lagerfeld endaði með því að kæra Drake þar sem honum fannst ekki rétt mynd dregin upp af fjölskyldu sinni. Lagerfeld tapaði málinu og hefur enn ekki kært Maillard þrátt fyrir að hafa látið allt flakka í bókinni sinni.

Nú hefur Merci Karl verið gefin út á þýsku í heimalandi Lagerfeld, Þýskalandi. Maillard, sem vann fyrir Lagerfeld í fimm ár, var á dögunum í viðtali við þýska tímaritið Spiegel þar sem hann kjaftar meira frá persónueinkennum tískuhönnuðarins. „Hann er ótrúlegur sjálfsdýrkandi. Hann þarf heila eilífð til að gera sig til á morgnana. Hann tekur myndir af sjálfum sér í hverri myndatöku og dreifir þeim um allt. Hann umkringir sig með konunglegri hirð, enginn má vera ósammála honum." Maillard sagði einnig að Lagerfeld hiki ekki við að reka fólk, en þetta kom einnig fram í bókinni Beautiful Fall. Í viðtalinu við Spiegel kom hann því einnig á framfæri að Lagerfeld eyddi aðeins einum degi í að hanna línu sína fyrir H&M, restina sá teymi hans um.

Lagerfeld rak Maillard árið 2005 af því hann hafði tjáð sig um starf hjá tískuhúsinu Celine sem hann sóttist eftir. „Í þessum iðnaði viltu ekki abbast upp á Lagerfeld – og ég hef verið atvinnulaus þangað til í dag," segir Maillard um þau völd sem Lagerfeld hefur innan tískuheimsins. Hann segir bókina ekki gerða til að ná sér niður á Lagerfeld. „Ég lærði mikið af honum og ber enn þann dag í dag mikla virðingu fyrir honum. Hann er snillingur. En eftir það sem gerðist fyrir mig vildi ég lýsa annarri hlið á Karl." Merci Karl hefur enn ekki verið gefin út á ensku en þangað til verða þessar lýsingar Maillard að nægja af tískugoðinu Lagerfeld, sem hann segir stærstu dívu tískuheimsins.