Gabrielle Greiss hættir hjá Sonia Rykiel

81991241472836frettirgreiss.PNG
Sonia Rykiel, Nathalie Rykiel, Gabrielle Greiss; vor- og sumarlína Sonia Rykiel 2009.

Hönnuðurinn Gabrielle Greiss er farin frá franska tískuhúsinu Sonia Rykiel. Greiss, sem er útskrifuð úr Central Saint Martins hönnunarskólanum í London, fékk stöðu sem listrænn stjórnandi Sonia Rykiel árið 2007 eftir að hafa verið aðalaðstoðamaður Soniu Rykiel sjálfrar í þrjú ár. Áður en Greiss hóf störf fyrir Rykiel vann hún meðal annars hjá Lanvin, Anna Molinari og Martine Sitbon.

Greiss hefur aðeins stjórnað listrænni stefnu tískuhússins í átján mánuði, en nú verður listræn stjórnun í höndum Soniu Rykiel og Nathalie Rykiel, forstjóra fyrirtækisins. Hún sagði í samtali við Women‘s Wear Daily afsögnina vera sameiginlega ákvörðun beggja aðila. Hún bætti jafnframt við að hún sé búin að mynda hönnunarteymi undir stjórn sinni og Soniu Rykiel.

Sonia Rykiel tískuhúsið er þekkt fyrir Parísartísku eins og hún gerist best, en þó með gamansömu yfirbragði. Tískuhúsið varð 40 ára á síðasta ári og var þá haldin heljarinnar sýning þar sem Soniu Rykiel og dóttur hennar Nathalie ásamt Greiss þóttu takast vel til. Miðað við ferilskrá Greiss er einungis spurning um tíma hvað hún tekur sér fyrir hendur næst.