Garance Doré fyrir Gap

frettirgdore.PNG

Nýjustu fréttir innan tískubloggheimsins er samvinna bloggarans Garance Doré við Gap. Fyrir þá sem ekki þekkja til Garance Doré, þá er hún franskur ljósmyndari og teiknari sem einbeitir sér að því að taka myndir af smart klæddu fólki á götum Parísar og víða. Garance er ein af þekktustu götustílsljósmyndurunum en sá þekktasti er án efa Scott Schuman, kærasti Garance. Nýjasta verkefni Garance er að sýna fallegar tískuteikningar sínar í tímabundinni verslun sem Gap mun opna í London.

Patrick Robinson, yfirhönnuður Gap, er á fullu við að hressa upp á klassíska ameríska merkið í tilefni af 40 ára afmælisári þess. Liður í þessari áætlun er að fá Garance til að sýna í versluninni í London en auk sýningarinnar munu einnig verða framleiddir bolir með áprentuðum teikningum eftir hana. Verslunin mun opna á Carnaby Street 10.september og verður aðeins opin í um 20 daga. Í henni verður hægt að nálgast gallabuxnalínu verslanakeðjunnar ásamt sérstökum hönnunarlínum í takmörkuðu upplagi.