Geimfarar í Louis Vuitton auglýsingu

88851244472680frettircorevalues.PNG

Louis Vuitton hafa opinberað nýjustu auglýsinguna í Core Values herferðinni, sem gæti útlagst sem kjarnagildi. Þar er að sjá geimfarana Buzz Aldrin, Sally Ride og Jim Lovell en myndina tók heimsfrægi ljósmyndarinn Annie Leibovitz. Geimfararnir stara til himins að kvöldi til í eyðimörk í Kaliforníu. Auglýsingin markar það að 40 ár eru liðin frá Apollo 11 áætlunarverkinu en slagorð auglýsingarinnar er: ‘Sum ferðalög breyta mannkyninu til eilífðar‘. Auglýsingin mun birtast í júlí tölublöðum ýmsra tímarita.

Það er virt fólk sem sitið hefur fyrir í Core Values herferðinni, en þar má til dæmis nefna leikarana Sean Connery og Catherine Deneuve, tónlistarmanninn Keith Richards og leikstjórann Francis Ford Coppola ásamt dóttur hans Sofiu. Með herferðinni auglýsir Louis Vuitton ferðatöskur sínar en með fyrrnefndum fyrirsætum reyna þeir að ná til fágaðri og eldri viðskiptavina. Mikið er lagt í að ákveðinn boðskapur fylgi hverri auglýsingu og eiga þær fyrst og fremst að vera áhugaverðar og heillandi. Það hefur enn og aftur tekist með geimfaraauglýsingunni.