Georgia May Jagger í gallabuxnaauglýsingum
Georgia May Jagger er aðeins 17 ára en vegna frægra foreldra og góðra gena hefur hún afrekað meira en margir jafnaldrar hennar. Foreldrarnir eru fyrrum Rolling Stone meðlimurinn Mick Jagger og fyrirsætan Jerry Hall. Georiga hefur fengið mikla athygli fyrir fyrirsætuútlit sitt en nýjasta verkefnið hennar er auglýsingaherferð fyrir Hudson gallabuxnamerkið. Eins og er hafa aðeins nokkrar myndir verið birtar úr herferðinni en á öðrum óbirtum myndum situr kærasti Jagger, tónlistarmaðurinn Django James, einnig fyrir.
„Þetta er stærsta herferðin sem við höfum gert og hún mun taka merkið á næsta stig,“ sagði forstjóri Hudson Jeans. Merkið er í raun svo hrifið af Jagger að þeir hafa gert samning við hana til þriggja ára. Það var ljósmyndarinn Mario Sorrenti, fyrrverandi Kate Moss, sem myndaði fyrstu herferðina sem birtist í tímaritum í september. Jagger þykir hafa einstakt útlit en auglýsingastjóri Hudson Jeans sagði persónuleika hennar hafa heillað einna mest. Hann, ásamt eðlislægum kynþokka, skilar sér að lokum á myndunum.
