Gucci skilnaður Tom Ford

98131245447185frettirtomford.PNG

Fyrrverandi hönnuður Gucci, Tom Ford, segir brottför sína frá tískuhúsinu hafa verið eins og erfiðan skilnað. Ford hætti sem yfirhönnuður Gucci árið 2004 og hafði þá verið við störf hjá tískuhúsinu í 10 ár. Hann segist hafa verið eyðilagður fyrst um sinn og að honum hafi liðið eins og hann hafi misst elskuga. „Þú getur ímyndað þér hvernig þetta var þegar ég fór. Jafnvel þó ég hafi séð orðin skrifuð á vegginn í tvö ár áður en ég fór," tjáir Ford. „Þetta var eins og skilnaður. Ég var sviptur. Ég hef unnið mikið í sjálfum mér og er kominn yfir það."

Þessi játning kemur fyrst núna frá tískuhönnuðinum, fimm árum eftir að hann hætti hjá Gucci. Ástæðan fyrir því að hann fór var listrænn ágreiningur milli hans og yfirmannanna. Hann viðurkennir að hafa ekki vitað strax hvað hann ætlaði að gera. „Ég hafði ekkert í sigtinu. Bókstaflega ekkert. Þú hefur það ekki þegar þú vinnur að sextán tískulínum á ári." Fljótlega stofnaði hann þó merki í eigin nafni þar sem hann hefur einbeitt sér að framleiðslu ýmis tísku- og lúxusvarnings, meðal annars ilmvatna, sólgleraugna og eðalfatalínu fyrir karlmenn.